29.07.2010 23:08
Dagur tvö: Ganga um Winnipeg
Nýjar myndir á hverjum degi.
Í dag gekk allt vel. Altsvo, allir fóru í göngutúra um miðbæ Winnipeg. Þar er margt að sjá. Til dæmis má sjá þinghúsið þar sem stytta af Jóni Sigurðssyni er í garðinum, eins og styttan í Reykjavík. Þegar við vorum að skoða styttur og fleira utan við húsið þá gengur Jóhanna Sigurðuradóttir forstætisráð... herra út úr þinghúsinu og sest inn í FORD drossíu. En að það sé eitthvað merkilegt. Hún var jú í flugvélinni með okkur á leiðinni út frá KEF.
Svæði eitt er ber nafnið The Forks er í "downtown" Winnipeg en þar var einhverskona "hittingarstaður" þeirra sem þurftu að skipta á vörum og eiga viðskipti. Meira má lesa um það hér.
Þar er starfræktur markaður sem heitir Winnipeg Forks Market.

Flestir fóru svo norður eftir borginni til að skoða The Manitoba Museum (e. Le Musée du Manitoba, á frönsku). Það er mjög flott og vel upp sett safn sem spannar tímabil risaeðlanna og allt til dagsins í dag.
Þetta safn ættu allir sem hingað koma að skoða.
Núna klukkan 18:30 er kóræfing hér á hótelinu og farið yfir helstu atriði varðandi morgundaginn en þá verður farið til Grand Forks í Bandaríkjunum til að syngja í Montain á Íslendingadeginum þar. Sú hátið breytir 100 manna þorpi í 5000 manna partýbæ og þar skal verða stuð :-)
Fleiri myndir bættust inn í myndaalbúmið núna áðan og koma sennilega fleiri á laugardagskvöld. Ekki er víst að myndir komi inn á morgun né nokkur skýrsla. En hver veit.
Smellið á myndina til að skoða fleiri.

Skrifað af 1. bassi
Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 19
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 20415
Samtals gestir: 8902
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 17:32:55